Hjá A4  leggjum við metnað okkar í það að vera í fararbroddi á sviði skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og við leggjum áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það sameiginlegt að vera öll í háum gæðaflokki.

A4 er nýtt fyrirtæki byggt á gömlum, traustum grunni sem á sér langa sögu. Hana má rekja til ársins 1985 þegar söludeild Odda var opnuð. Úr þeirri söludeild varð til fyrirtæki sem hét Oddi skrifstofuvörur og var það fyrirtæki leiðandi á skrifstofuvörumarkaðnum. Síðar, þegar fyrirtækið keypti Skólavörubúðina, varð fyrirtækið A4 Skrifstofa og skóli leiðandi á sviði skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara.

A4 Skrifstofa og skóli ehf. Kt. 600209-0270 Vsk.nr. 94728.
Heimilisfang: Smáratorg 1, 201 Kópavogur.                        
Skiptiborð: 580-0010. Pantanasími: 580-0000.
Fax: 580-0001. 
Netfang: 
sala@a4.is