Skilaréttur

Skilafrestur er 2 vikur frá afhendingu vöru og háður því að varan sé í upprunalegu ástandi og framvísað sé kvittun fyrir kaupunum.

 

Afhending

Pöntunum af höfuðborgarsvæðinu sem berast fyrir kl.11.00 að morgni er ekið út samdægurs, annars næsta virka dag. Pöntunum frá stöðum utan höfuðborgarsvæðis er ekið á vöruflutningamiðstöðvar innan 24 tíma. Heimsending innan höfuðborgarsvæðis eða sending á vöruflutningamiðstöð er án endurgjalds ef upphæð pöntunar er yfir 12.000 krónur án vsk (15.060 m/vsk) annars bætast 1.500 krónur án vsk (1.883 m/vsk) við reikninginn.

 

Verð

Öll verð í vefversluninni eru með virðisaukaskatti og geta breyst án fyrirvara.

 

Trúnaður

Farið er með allar upplýsingar sem kaupandi gefur upp við viðskiptin sem trúnaðarmál og verða ekki afhentar 3.aðila undir neinum kringumstæðum.

Netgreiðslur í vefverslun A4
A4 býður viðskiptavinum sínum að greiða fyrir vörur með greiðslukortum í vefverslun í gegnum örugga greiðslusíðu hjá Valitor.

Hvað er Örugg greiðslusíða?

  • Vefsíða þar sem greiðsla á sér stað í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi VALITOR
  • Korthafi flyst af vefverslun söluaðila á Öruggu greiðslusíðuna til að ganga frá greiðslu

    Örugg greiðslusíða gerir söluaðilum kleift að taka við kreditkortagreiðslum á einfaldan, öruggan og ódýran hátt. Viðskiptavinur velur vöru eða þjónustu á vefsíðu söluaðila og þegar kemur að greiðslu er hann fluttur yfir á örugga greiðslusíðu VALITOR þar sem kortaupplýsingar eru skráðar og greiðsla fer fram. Þegar leitað hefur verið eftir heimild fyrir færslu, berst staðfesting til viðskiptavinar og söluaðila.

Söluaðili, sem nýtir sér Örugga greiðslusíðu VALITOR, þarf hvorki að taka við né geyma kortanúmer viðskiptavina sinna. Örugg greiðslusíða VALITOR tryggir að kortaupplýsingar viðskiptavina vefverslana séu meðhöndlaðar í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi og aldrei aðgengilegar þriðja aðila. (tekið af vef Valitor, www.valitor.is, 05.01.2009)

Almennt

A4 áskilur sér rétt til að hætta við afgreiðslu á pöntun t.d. vegna rangra verð- eða magnupplýsinga í vefverslun.

 

Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr.96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr.48/2003